Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1711044

Skipulagsnefnd - 35. fundur - undefined


Hópsnes ehf. kt. 470265-0199 sækir um leyfi til að sameina lóðirnar Verbraut 3 og Verbraut 1. Verbraut 1 er skilgreind á svæði fyrir samfélagsþjónustu skv. aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030. Svæðið er nánar skilgreint fyrir t.d. menningar- og listatengda starfsemi og byggðasafn skv. deiliskipulagi gamla bæjarins sem samþykkt var í b-deild stjórnartíðinda þann 30. maí 2016. Verbraut 3 er skilgreind á hafnarsvæði skv. aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 og deiliskipulagi hafnarsvæðis sem samþykkt var í b-deild stjórnartíðinda þann 22. október 2015. Í 5.3.1. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 segir um afmörkun deiliskipulags.

"Deiliskipulag skal að jafnaði ná til reits eða svæða sem mynda heildstæða einingu eins og svæði með sömu landnotkun, svæði afmarkað af götum, húsaþyrpingu, svo sem á landbúnaðarsvæðum, eða annað sem gefur sameiginlegar forsendur fyrir viðkomandi deiliskipulag. Í greinargerð deiliskipulags skulu færð rök fyrir afmörkun skipulags­svæðisins. Deiliskipulagssvæði mega ekki skarast"

Skipulagsnefnd hafnar erindinu.


Hópsnes ehf. kt. 470265-0199 sækir um leyfi til að sameina lóðirnar Verbraut 3 og Verbraut 1. Verbraut 1 er skilgreind á svæði fyrir samfélagsþjónustu skv. aðalskipulagi Grindavíkur 2020-2030 Svæðið er nánar skilgreint fyrir menningar- og listatengda starfsemi, byggðasafn skv. deiliskipulagi gamla bæjarins sem samþykkt var í b- deild stjórnartíðinda þann 30. maí 2016. Verbraut 3 er skilgreind á hafnarsvæði skv. aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 og deiliskipulagi hafnarsvæðis sem samþykkt var í b- deild stjórnartíðinda þann 22. október 2015.