Málsnúmer 1711043
Bæjarstjórn Grindavíkur - 482. fundur - undefined
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Páll Jóhann.
Tekið fyrir erindi frá Hópsnesi ehf. kt. 470265-0199. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir niðurrifi á mannvirki við Verbraut 1, landnúmer 129131.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Nefndin bendir á að á lóðinni eru skráðar fornminjar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
Erindi frá Hópsnes ehf. kt. 470265-0199. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir niðurrifi á mannvirki við Verbraut 1 landnúmer 129131. Lagt er til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Tillagan er samþykkt með 4 atkvæðum gegn einu atkvæði B lista. Fulltrúi B lista lagði til að afgreiðslunni yrði frestað meðan beðið yrði umsagnar Minjastofnunar. Nefndin benti á að á lóðinni eru skráðar fornminjar.