Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1708002

Bæjarstjórn Grindavíkur - 475. fundur - undefined


Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.

Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Guðmundur og Páll Jóhann.

Erindi frá Iceland Construction ehf. kt. 540671-0959. Erindinu fylgir greinargerð unnin af Eflu verkfræðistofu dagsett 2.8.2017 ásamt áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum.
Sótt er um framkvæmdaleyfi til efnistöku, en Ístak hyggst halda áfram núverandi efnisvinnslu í
Stapafellsnámu. Staðsetningu námunnar er á miðjum Reykjanesskaga á milli Reykjanesbæjar og Grindavíkur. Tveir rekstraraðilar eru í Stapafellsnámu, Íslenskir aðalverktakar og Ístak. Til umfjöllunar hér er sá hluti námunnar sem varðar Ístak. Gert er ráð fyrir að tekið verði um 1,7 milljónir m3 af óhreyfðu bögglabergi. Efni hefur verið unnið úr Stapafelli í áratugi eða frá því um 1950, þegar uppbygging byrjaði á varnarliðssvæðinu.
Tilgangur efnistökunnar er að afla jarðefnis til vega- og mannvirkjagerðar. Efnið sem unnið er í námunni er bögglaberg, perlumöl og sandur. Samkvæmt svæðisskipulagi Suðurnesja er efnisþörf mikil til framtíðar þar sem áætluð er mikil uppbygging á atvinnuhúsnæði og stækkun íbúðabyggða á Suðurnesjum.
Svæðið þar sem námuvinnslan fer fram er skilgreint sem námusvæði í aðalskipulagi Grindavíkur og Reykjanesbæjar. Efnistakan er því í samræmi við gildandi aðalskipulagsáætlanir. Í niðurstöðu álits Skipulagsstofnunar segir m.a. Sú viðbót sem hér er til umfjöllunar mun hafa óveruleg áhrif á náttúruminjar en talsvert neikvæð á jarðmyndanir.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfið verði veitt skv. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.


Erindi frá Iceland Construction ehf. kt. 5406710959. Erindinu fylgir greinargerð unnin af Eflu verkfræðistofu dagsett 2.8.2017 ásamt áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum.$line$Sótt er um framkvæmdaleyfi til efnistöku, en Ístak hyggst halda áfram núverandi efnisvinnslu í$line$Stapafellsnámu. Staðsetningu námunnar, sem er á miðjum Reykjanesskaga á milli Reykjanesbæjar og Grindavíkur. Tveir rekstraraðilar eru í Stapafellsnámu, Íslenskir aðalverktakar og Ístak. Til umfjöllunar hér er sá hluti námunnar sem varðar Ístak. Gert er ráð fyrir að tekið verði um 1,7 milljónir m3 af óhreyfðu bögglabergi. Efni hefur verið unnið úr Stapafelli í áratugi eða frá því um 1950, þegar uppbygging byrjaði á varnarliðssvæðinu.$line$Tilgangur efnistökunnar er að afla jarðefnis til vega- og mannvirkjagerðar. Efnið sem unnið er í námunni er bögglaberg, perlumöl og sandur. Samkvæmt svæðisskipulagi Suðurnesja er efnisþörf mikil til framtíðar þar sem áætluð er mikil uppbygging á atvinnuhúsnæði og stækkun íbúðabyggða á Suðurnesjum. $line$Svæðið þar sem námuvinnslan fer fram er skilgreint sem námusvæði í aðalskipulagi Grindavíkur ogReykjanesbæjar. Efnistakan er því í samræmi við gildandi aðalskipulagsáætlanir.Í niðurstöðu álits Skipulagsstofnunar segir m.a. Sú viðbót sem hér er til umfjöllunar mun hafa óveruleg áhrif á náttúruminjar en talsvert neikvæð á jarðmyndanir.$line$$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfið verði veitt skv. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012