Málsnúmer 1706015
Bæjarráð Grindavíkur - 1448. fundur - undefined
Bókun fræðslunefndar lagðar fram.
Bæjarráð felur skólaskrifstofu að vinna málið áfram og leggja tillögur fyrir bæjarráð.
Fræðslunefnd telur mikilvægt að sveitarfélagið hlutist til um heildræna læsisstefnu fyrir allt samfélagið. Á fundi nefndarinnar voru lagðar fram læsis/lestrarstefnur skólanna. Fela þarf verkefnið ákveðnum ábyrgðaraðila og ákveða hverjir eigi að koma að verkefninu, s.s. skólar, bókasafn,dagforeldrar, foreldrar og fleiri, jafnvel með skipan starfshóps.