Málsnúmer 1705095
Bæjarstjórn Grindavíkur - 474. fundur - undefined
Til máls tók: Hjálmar.
Bætt er inn í reglurnar ákvæðum er snúa að úthlutun íbúða við Túngötu 15 - 17 (5. gr. a). Forgang eiga þeir sem þurfa á sérstökum stuðningi í skilningi reglugerðar um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu. Jafnframt er sett inn heimild til að úthluta íbúðum í húsnæðinu tímabundið (sex mánuði) þrátt fyrir að viðkomandi þurfi ekki á slíkum stuðningi að halda. Þá eru sett inn ákvæði í 10. gr. a. er tryggja leigusala (Grindavíkurbæ) til að færa leigjendur á milli íbúða ef málefnalegar ástæður liggja til grundvallar.
Bæjarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða
Bætt er inn ákvæðum er snúa að úthlutun íbúða við Túngötu 15 - 17 (5. gr. a). Forgang eiga þeir sem þurfa á sérstökum stuðningi í skilningi reglugerðar um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu. Jafnframt er sett inn heimild til að úthluta íbúðum í húsnæðinu tímabundið (sex mánuði) þrátt fyrir að viðkomandi þurfi ekki á slíkum stuðningi að halda. Þá eru sett inn ákvæði í 10. gr. a. er tryggja leigusala (Grindavíkurbæ) til að færa leigjendur á milli íbúða ef málefnalegar ástæður liggja til grundvallar.