Málsnúmer 1704024
Bæjarstjórn Grindavíkur - 473. fundur - undefined
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María,
Erindi frá Hermanni Ólafssyni lagt fram. Í erindinu er óskað eftir breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 vegna Víkurbrautar 34. Óskað er eftir því að reiturinn verði skilgreindur sem verslun og þjónusta svo hægt sé að reka þar gistiheimili. Í gildandi aðalskipulagi er reiturinn skilgreindur sem stofnanareitur.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn unnin verði breyting á aðalskipulagi í samræmi við erindið.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.
Óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 vegna Víkurbrautar 34.