Málsnúmer 1704021
Bæjarstjórn Grindavíkur - 498. fundur - undefined
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur og Helga Dís.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja verndaráætlun fyrir Þórkötlustaðahverfi.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að verndasvæði í byggð fyrir Þórkötlustaðahverfi skv. lögum nr. 87/2015 og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að senda tillöguna til mennta- og menningarmálaráðuneytisins til frekari málsmeðferðar.
Skipulagsnefnd hefur samþykkt verndaráætlun fyrir Þórkötlustaðahverfi og vísaði málinu til bæjarstjórnar til samþykktar.
Senda þarf verndaráætlunina til frekari málsmeðferðar hjá mennta- og menningamálaráðaneytinu.