Málsnúmer 1704002
Bæjarstjórn Grindavíkur - 480. fundur - undefined
Til máls tóku: Hjálmar, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Guðmundur
Með setningu laga nr. 127/2016 var lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins breytt og hafði sú lagabreyting áhrif á A deild Brúar lífeyrissjóðs frá 1. júní 2017 sem kallaði á framlög launagreiðenda til A deildar sjóðsins.
Lögð fram drög að samkomulagi um uppgjör milli Brúar lífeyrissjóðs og Grindavíkurbæjar um framlag Grindavíkurbæjar til A-deildar Brúar lífeyrissjóðs vegna Jafnvægissjóðs, Lifeyrisaukasjóðs og Varúðarsjóðs.
Jafnvægissjóðnum er til að mæta halla á áfallinni lífeyrisskuldbindingu A deildar sjóðsins þann 31.maí 2017. Framlag launagreiðenda í jafnvægissjóði er skipt hlutfallslega á launagreiðendur eftir iðgjaldaskilum þeirra frá stofnun sjóðsins til 31.maí 2017.
Lífeyrisaukasjóðnum er ætlað að mæta breytingu á réttindaöflun sjóðsfélaga í A deild til framtíðar. Framlag launagreiðenda í lífeyrisaukasjóði er skipt hlutfallslega á launagreiðendur eftir iðgjaldaskilum frá 1. janúar 2017- 31.maí 2017 en þau iðgjöld taka mest mið af framtíðarskipan sjóðsins.
Varúðarsjóðnum er ætlað til að standa til vara að baki lífeyrisaukasjóðnum. Ef tryggingafræðileg staða lífeyrisaukasjóðsins samkvæmt árlegu mati verður neikvæð um 10% eða meira í fimm á eða hafi hún haldist neikvæð samfellt a.m.k. 5% í meira en tíu ár skal leggja höfuðstól varúðarsjóðsins að hluta eða í heild við eignir lífeyrisaukasjóðsins. Framlag launagreiðenda í varúðarsjóði er skipt hlutfallslega á launagreiðendur eftir iðgjaldaskilum frá 1. janúar 2017- 31.maí 2017.
Útreiknað framlag Grindavíkurbæjar í þessa 3 sjóði eru 240.659.817 kr.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samkomulagið og felur bæjarstjóra að undirrita það. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn samhljóða að greiða til lífeyrissjóðsins 240.659.817 kr. sem teknar verði af handbæru fé.
Bæjarstjórn þarf að samþykkja samkomulagið og bæjarstjóri þarf að undirrita það. Auk þess þarf að samþykkja að greiða kröfurnar sem eru að heildarfjárhæð 240.659.817 kr. og taka þá fjárhæð af handbæru fé.