Málsnúmer 1703054
Bæjarstjórn Grindavíkur - 477. fundur - undefined
Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar, Marta, Páll Jóhann, Guðmundur, Kristín María og Ásrún
Tekin fyrir breyting á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 vegna miðbæjar ásamt greinargerð með endanlegri áætlun og umhverfisskýrslu skv. lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Tillagan var auglýst með athugasemdafrest frá 8. maí til 26. júní. Óskað var eftir umsögnum frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Umhverfisstofnun og Vegagerðinni. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun og Vegagerðinni. Í umsögn Umhverfisstofnunar er minnt reglugerð um fráveitur og skólp nr. 789/1999. Í umsögn Vegagerðar eru sett skilyrði þegar kemur að gatnahönnun ásamt ósk um að þegar kemur að framkvæmd verði hönnunargögn send Vegagerðinni til umsagnar. Engar athugasemdir bárust frá hagsmunaðilum eða almenningi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að svara umsögnum í samræmi við fyrirliggjandi drög að svörum og skipulagsfulltrúa falin tillagan til fullnaðarafgreiðslu skv. 2 mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillaga frá meirihluta
Tillaga meirihluta skipulagsnefndar frá 18. september var að fela sviðsstjóra að leggja fram tillögu að skiptingu svæðisins í samræmi við umræður á fundinum og leggur meirihluti bæjarstjórnar til að farið verði eftir þessari tillögu skipulagsnefndar.
Fundarhlé tekið kl. 17:35-17:50
Breytingartillaga
Fulltrúar minnihluta B og S lista leggja til að fyrri tillaga skipulagsnefndar verði samþykkt. En hún hljóðar svo: Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að svara umsögnum í samræmi við fyrirliggjandi drög að svörum og skipulagsfulltrúa falin tillagan til fullnaðarafgreiðslu skv. 2 mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillaga frá meirihluta er samþykkt með 4 atkvæðum gegn 3 atkvæðum minnihluta.
Bókun
Fulltrúar minnihluta B og S lista lýsa vanþóknun á vinnubrögðum meirihluta sem hefur dregið málið áfram allt kjörtímabilið. Fyrir löngu var það ljóst að meirihlutinn ætlaði ekki að samþykkja skipulagið óbreytt en í stað þess að koma fram með breytingartillögu hefur málinu ítrekað verið frestað og stungið undir borð.
Fundarhlé tekið kl. 18:00-18:05
Bókun
Fulltrúar meirihluta vísa á bug ásökunum um að málinu hafi verið stungið undir borð og vísvitandi frestað. Bent hefur verið á að unnið sé að skipulagi til framtíðar og því eðlilegt að slík vinna taki tíma. Að öllum líkindum verður ekki farið framkvæmdir við gatnamót Víkurbrautar ? Ránargötu á næstu 5-15 árum og því er ekki verið að tefja það verk. Við ítrekum mikilvægi þess að ná sem víðtækastri sátt um þessi stóru og fjölförnu gagnamót sem staðsett eru í hjarta bæjarins.
Fulltrúar D og G lista
Tekin fyrir breyting á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 vegna miðbæjar ásamt greinargerð með endanlegri áætun og umhverfisskýrslu skv. lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Tillagan var auglýst með athugasemdafrest frá 8. maí til 26. júní. Óskað var eftir umsögnum frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Umhverfisstofnun og Vegagerðinni. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun og Vegagerðinni. Í umsögn Umhverfisstofnunar er minnt reglugerð um fráveitur og skólp nr. 789/1999. Í umsögn Vegagerðar eru sett skilyrði þegar kemur að gatnahönnun ásamt ósk um að þegar kemur að framkvæmd verði hönnunargögn send Vegagerðinni til umsagnar. Engar athugasemdir bárust frá hagsmunaðilum eða almenningi.$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að svara umsögnum í samræmi við fyrirliggjandi drög að svörum og skipulagsfulltrúa falin tillagan til fullnaðarafgreiðslu skv. 2 mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.