Málsnúmer 1703017
Bæjarstjórn Grindavíkur - 474. fundur - undefined
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Kristín María og Marta.
Lagður fram til staðfestingar samningur við knattspyrnudeild UMFG vegna umsýslu eigna á knattspyrnuvelli.
Bókun frá fulltrúum B-lista
Fulltrúar Framsóknarflokksins taka undir með sviðstjóra frístunda- og menningarsviðs þar sem hún mælir með því að fallið verði frá samningi við Knattspyrnudeild um daglegan rekstur eigna Grindavíkurbæjar á íþróttasvæðinu og verkefnin falin starfsmönnum íþróttahúss. Tekið verði mið af þeirri verkefnastöðu sem er í íþróttahúsi og aukið við starfshlutfall eftir þeim þörfum sem aukin verkefni kalla á, það muni styrkja starfsemi íþróttahúss og létta/dreifa álagi á starfsmönnum þess á næstu árum.
Framsóknarmenn munu því sitja hjá við þessa afgreiðslu eins og þeir hafa gert í þessu máli fram að þessu.
Bæjarstjórn staðfestir samninginn með 5 atkvæmum, Páll Jóhann og Guðmundur Grétar sitja hjá.
Meirihluti bæjarráðs leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 2.760.000 kr. á lið 06611-4341 sem verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs með 5 atkvæðum, Páll Jóhann og Guðmundur Grétar sitja hjá.
Samningur við knattspyrnudeild UMFG vegna umsýslu eigna á knattspyrnuvelli var lagður fram á fundi bæjarráðs og var bæjarstjóra falið að undirrita samninginn.$line$$line$Jafnframt lagði meirihluti bæjarráðs til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 2.760.000 kr. á lið 06611-4341 sem verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.