Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1702011

Bæjarstjórn Grindavíkur - 471. fundur - undefined


Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.

Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Marta, Páll Jóhann og Hjálmar

Neyðarlínan óskar eftir heimild til að reisa 30 m. stálmastur við hlið Hópsnesvita til að bæta neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi. Auk þess skapast möguleiki fyrir fjarskiptafyrirtæki að bæta farsíma- og netþjónustu.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um að settir verði skilmálar um jarðrask og frágang til að tryggja að umgengni á framkvæmdartíma verði til fyrirmyndar. Einnig að fyrir liggi jákvæð umsögn Vegagerðarinnar og Samgöngustofu ásamt leyfi landeigenda.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Skipulagsnefndar.


Neyðarlínan er að óska eftir að setja upp mastur til að tryggja betur öryggi ferðamanna en ekki síður betri tengingu fyrir alla. $line$$line$Á Hópsnesi er viti sem skv. vitaskrá er 16 m hár. Þetta mastur er því helmingi hærra en vitinn. Hópsnesið er skilgreint sem óbyggt svæði með hverfisvernd til að gæta þess að svæðið sé aðeins nýtt til útvistar vegna sérstöðu þeirrar náttúru sem þar er. Skilmálar hverfisvernda á svæðinu eru: Rannsóknir á búsetuminjum, framkvæmdir við endurgerð bryggju í nothæft ástand og við stíga og merkingar vegna umhverfisfræðslu eru leyfilegar á svæðinu. Starfsemi hafnarinnar og stækkun hafnarsvæðis ef þörf krefur, svo og staðsetning hreinsistöðvar og útdæling fráveitu verði ekki heft með hverfisverndinni.$line$$line$Í aðalskipulagi Grindavíkur er ekki rætt um fjarskipti. Samkvæmt nýju skipulagsreglugerðinni er tekið fram að stefna skal sett um stakar framkvæmdir sem ekki þarf að afmarka sérstaka landnotkun í kringu um t.d. fjarskiptamöstur, hægt er að taka á þessu í endurskoðuninni. Í gildandi aðalskipulagi er ekki sérstaklega verið að gera greina fyrir öðrum möstrum eins og t.d. á Þorbirni. Samkvæmt byggingarreglugerð er gerð grein fyrir fjarskiptamöstrum í gr. 4.3.7.$line$$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um að settir verði skilmálar um jarðrask og frágang til að tryggja að umgengni á framkvæmdartíma verði til fyrirmyndar. Einnig að fyrir liggi jákvæð umsögn vegagerðarinnar og samgöngustofu ásamt leyfi landeigenda.