Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1701098

Bæjarstjórn Grindavíkur - 470. fundur - undefined


Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.

Aðrir sem til máls tóku: Kristín María og Guðmundur

Verðkönnun lögð fram vegna færslu lagna við Víðihlíð. 2 tilboð bárust og var GG Sigurðsson með lægra tilboðið, kr. 9.385.500 sem er 75,7% af kostnaðaráætlun Nauðsynlegt er að færa lagnir áður en hægt er að hefja framkvæmdir við viðbyggingu.

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs leggur til að gengið verði til samninga við GG Sigurðsson og óskar jafnframt eftir heimild til að fjármagna verkið með að taka af lið á fjárhagsáætlun vegna áætlunar um fráveituframkvæmdir í Mánagerði en það þarf ekki að fara í þær aðgerðir.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu sviðsstjóra.


Verðkönnun lögð fram verna færslu lagna við Víðihlíð, en nauðsynlegt er að færa lagnir áður en hægt er að hefja framkvæmdir við viðbyggingu. Ósk um viðauka.