Málsnúmer 1701001
Hafnarstjórn Grindavíkur - 448. fundur - undefined
Hafnarstjórn bendir á að rekstur hafnarinnar stendur að mörgu leyti vel, en líkt og margar fiskihafnir geta hafnarsjóðir sem reiða sig að mestu leyti á aflagjöld og hefðbundin þjónustugjöld af fiskiskipum illa staðið undir nauðsynlegum fjárfestingum. Þar skilur á milli hafna sem einnig hafa tekjur af út- og innflutningi. Afla sem skipað er á land í Grindavíkurhöfn eru u.þ.b. 20 milljarðar í útflutningsverðmætum. Um er að ræða gríðarleg aflaverðmæti sem fara um fiskiskipahafnir sem útflutningshafnir njóta góðs af. Hafnarstjórn telur að jafna þurfi hlut fiskhafna og út - og innflutningshafna í gegnum hafnabótasjóð.
Bréf frá Hafnasambandi Íslands til hafna með bága fjárhagsstöðu, þar sem óskað er eftir því með hvaða hætti hafnasjóðir muni bregðast við.