Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1612034

Bæjarstjórn Grindavíkur - 474. fundur - undefined


Til fundarins var mættur sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Ármann Halldórsson, og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.

Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar.

Grenndarkynning hefur farið fram og ein athugasemd barst frá Trésmiðju Heimis. Í athugasemdinni er framkvæmdinni mótmælt vegna sjónmengunnar og ósamræmis í raðhúsinu.
Skipulagsnefnd telur að útsýni sé ekki skert með breytingunni. Nefndin telur að ekki sé lýti af mannvirkinu og bendir að lokum á að breytingin á við um allar íbúðir í lengjunni til að stuðla að samræmi.

Tillaga
Sviðsstjóra er falið að svara athugasemdinni í samræmi við bókun skipulagsnefndar og að senda Skipulagsstofnun breytinguna og staðfesta hana með auglýsingu í b-deild stjórnartíðinda skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða


Tekið fyrir eftir grenndarkynningu. Ein athugasemd barst frá Trésmiðju Heimis. Í athugasemdinni er framkvæmdinni mótmælt vegna sjónmengunnar og ósamræmis í raðhúsinu. Skipulagsnefnd telur að útsýni sé ekki skert með breytingunni. Nefndin telur að ekki sé lýti af mannvirkinu og bendir að lokum á að breytingin á við um allar íbúðir í lengjunni til að stuðla að samræmi.