Málsnúmer 1611024
Bæjarstjórn Grindavíkur - 469. fundur - undefined
Til máls tóku: Kristín María, Marta, Páll Jóhann, Ásrún, Hjálmar og Jóna Rut
Bókun
Ég undirritaður hef áður lýst yfir vanþóknun minni á þeirri ákvörðun fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Grindavíkurlista án nokkurs samráðs við aðra bæjarfulltrúa að skipta um bæjarstjóra þegar svo stutt er eftir af kjörtímabilinu, ákvörðun sem kostar bæjarsjóð vel á annan tug miljóna.
Að hafa samráð þegar bæjarstjóri er ráðinn en ekki rekinn er ekki vinnubrögð sem ég get sætt mig við og mun því sitja hjá við þessa afgreiðslu þó ég hafi ekkert út á þennan einstakling að setja sem verið er að ráða.
Páll Jóhann Pálsson, fulltrúi B-lista
Ráðningarsamningur við Fannar Jónasson, nýjan bæjarstjóra Grindavíkurbæjar, er samþykktur með 6 atkvæðum, Páll Jóhann situr hjá.
Ráðningarsamningur við Fannar Jónasson, nýjan bæjarstjóra Grindavíkurbæjar, lagður fram til samþykktar.