Málsnúmer 1610059
Frístunda- og menningarnefnd - 73. fundur - 5.7.2018 00:00:00
Mikilvægt er að göngustígar séu vel merktir og auglóst sé hvar hestamenn eiga rétt á að vera og hvar gangandi umferð sé. Nefndarmenn benda á að þeim hafi borist kvartanir um að hestamenn fari á malbikaða stíga og að hundaeigendur fari innfyrir hlið í Hópsnesi og sleppi hundum lausum. Ósk er beint til umhverfis- og skipulagssviðs að átak sé gert í merkingu stíga og að skilmerkilega sé gerður munur á þeim stígum sem er fyrir hestamenn og gangandi umferð.