Málsnúmer 1610033
Bæjarstjórn Grindavíkur - 466. fundur - undefined
Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann og Marta
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna áhrifa kjarasamninga á laun. Áætluð áhrif á fjárhagsáætlun 2016 er 85.829.000 kr. og er fjármagnað með lækkun lykla 21611-1110 um kr. 22.000.000 og lækkun á 21611-1890 um kr. 5.500.000. Mismun að fjárhæð 58.329.000 kr. er fjármagnaður með hækkun á áætlun staðgreiðslu ársins 2016.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur. Fjármögnun verði með lækkun lykla 21611-1110 um kr. 22.000.000 og lækkun á 21611-1890 um kr. 5.500.000. Mismun að fjárhæð 58.329.000 kr. er fjármagnaður með hækkun á áætlun staðgreiðslu ársins 2016.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.