Málsnúmer 1609105
Bæjarstjórn Grindavíkur - 466. fundur - undefined
Til máls tóku: Hjálmar, Marta og Páll Jóhann
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun Vatnsveitu Grindavíkur fyrir árið 2016 að fjárhæð 11.000.000 kr. Beiðnin er tilkomin vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Víðihlíð, en þar þarf að færa stofnlagnir raf, síma, hita, fráveitu og neysluvatns þar sem núverandi lagnir eru fyrir nýbyggingunni og hæðarsetning leyfir ekki að hafa þær í grunninum. Með framkvæmdinni verða lögnum komið fyrir út fyrir byggingarreit fyrir framtíðarstækkun Víðihlíðar og eiga því ekki að vera fyrir þótt Víðihlíð verði stækkuð enn meira í framtíðinni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðaukinn verði samþykktur og komi til lækkunar á handbæru fé ársins 2016.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.
Afgreiða viðauka