Málsnúmer 1609039
Skipulagsnefnd - 21. fundur - undefined
Skipulagsnefnd bendir á að mörkuð verður stefna í vindorkumálum í yfirstandandi vinnu við endurskoðun aðalskipulags. Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og að mælingar verði gerðar við Rauðamel en óskar eftir nákvæmari framkvæmdaleyfisgögnum sbr. 7. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Einnig óskar nefndin eftir að fá að nýta gögn vegna mælinga við endurskoðun aðalskipulags.
Erindi frá HS Orku hf. kt: 680475-0169. Í erindinu er óskað er eftir heimild til að reisa allt að 80 metra hátt mastur til að styðja við frekari vindorkurannsóknir á svæðinu við Mölvík, Staðarlandi. Áætlað er að mælingar standi yfir í eitt ? tvö ár. eftir það verði mastrið fjarlægt.