Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1609032

Bæjarstjórn Grindavíkur - 466. fundur - undefined


Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.

Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Páll Jóhann.

Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn Grindavíkurbæjar á matsskyldufyrirspurn vegna aukinar nýtingu jarðvarma í orkuveri HS í Svartsengi. Fyrirhuguð framkvæmd gerir ráð fyrir nýjum lögnum sem tengja holur sva25 og sva26 við orkuverið. Holurnar voru boraðar á árunum 2015/2016. Með framkvæmdinni er áætlað að aflgeta virkjunarinnar aukist um 6 MW. Fylgt verður eldri lagnaleiðum og ekkert rask verður á óröskuðu landi. Framkvæmdin, eins og henni er lýst í fyrirspurninni, er í samræmi við deiliskipulag svæðisins og Aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2010-2030. Skipulagsnefnd telur að umhverfisáhrif framkvæmdarinnar gefi ekki tilefni til umhverfismats skv. lögum um umhverfismat framkvæmda nr. 106/2000. Skipulagsnefnd bendir á að sækja ber um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu lagnanna og ítrekar að mögulegur uppgröftur á jarðefni fari ekki inn á óraskað land.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að svara beiðni Skipulagsstofnunar í samræmi við ályktun skipulagsnefndar.