Málsnúmer 1609020
Bæjarstjórn Grindavíkur - 472. fundur - undefined
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María og Páll Jóhann
Beiðni Skipulagsstofnunar um umsögn um frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum efnistöku Ístaks í Stapafelli lögð fram.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 23. fundi þann 21.11.2016 og telur að afmarka verði raskað svæði með hnitsettum uppdrætti. Einnig telur nefndin að gera verði grein fyrir Árnastígnum um svæðið og hvaða áhrif náman hefur á gönguleiðina. Einnig verði skilgreint hvernig og hvar efni sem gætu haft áhrif á vatnsgæði eru geymd.
Bæjarstjórn vísar í fyrri umsögn skipulagsnefndar.
Bókun skipulagsnefndar: Tekin fyrir matsáætlun vegna Stapafelsnámu dagsett 13.3.2017. Skipulagsnefnd minnir á fyrri athugasemdir.