Málsnúmer 1609007
Bæjarráð Grindavíkur - 1421. fundur - 10.11.2016 00:00:00
Málið var áður á dagskrá bæjarstjórnar 4. október síðastliðinn.
Kjörskrárstofn vegna alþingiskosninga 29. október lagður fram.
Með vísan til 33. gr. Samþykktar um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar samþykkir bæjarstjórn að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að semja kjörskrá fyrir alþingiskosningar þann 29. október næstkomandi. Jafnframt er sviðsstjóra veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna alþingiskosninga 29. október nk. í samræmi við 27. gr. laga um kosningar til Alþingis.