Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1608072

Bæjarstjórn Grindavíkur - 464. fundur - undefined


Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fylgdi málinu eftir.

Til máls tóku: Kristín María, Ármann, Ásrún, Marta, Róbert og Guðmundur.

Olíuverslun Íslands ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir breytingu á innra skipulagi, uppsetningu á girtu vinnusvæði og að koma fyrir gám á lóðinni. Erindinu fylgja teikningar unnar af ASK arkitektum dagsettar 15.07.2012. Nú þegar hefur verið sett upp girðing og gámur á svæðið. Þær framkvæmdir samræmast ekki svipmóti svæðisins. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja erindið með fyrirvara um að girðing verði skermuð og gámur verði staðsettur innan girðingar. Byggingarleyfi verður gefið út þegar kröfum um svipmót er virt og ákvæði 3 mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 hafa verið uppfyllt.

Fulltrúar B-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Við undirrituð fulltrúar B-lista teljum að port sem hefur að geyma olíutunnur o.fl. sem tengist þessari starfsemi
eigi ekki heima á þessu svæði.
Ástæður þessa eru meðal annars nálægð við íbúðarhús og ásýnd fyrirhugaðs útivistarsvæðis, en stefnt er að því að
byggja upp á svæðinu Sjómannagarð Grindavíkur.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með fimm atkvæðum, gegn 2 atkvæðum B-lista.