Málsnúmer 1608055
Skipulagsnefnd - 21. fundur - undefined
Sigurður vék af fundi við afgreiðslu málsins. Erindi frá Gísla Grétari Sigurðssyni og Herði Sigurðssyni f.h. landeigenda Hrauns. Í erindinu er farið fram á að stígar og slóðar í landi Hrauns verði fjarlægðir úr aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2020. Skipulagsnefnd bendir á að hluti þeirra stíga sem rætt er um er ekki á aðalskipulagi. Skipulagsnefnd hafnar erindi um að fjarlægja úr aðalskipulagi þá stíga sem nú þegar eru skilgreindir og eru enn í notkun. Nefndin felur sviðsstjóra að svara erindinu.
Sigurður vék af fundi við afgreiðslu málsins og xxxx kom inn í hans stað. Erindi frá Gísla Grétari Sigurðssyni og Herði Sigurðssyni f.h. landeigenda Hrauns. Í erindinu er farið fram á að stígar og slóðar í landi Hrauns verði fjarlægðir úr aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2020. Sviðsstjóri leggur fram fundargerðir með landeigendum og 4x4 vegna málsins. Skipulagsnefnd bendir á að hluti þeirra stíga sem rætt er um er ekki á aðalskipulagi.