Málsnúmer 1608052
Bæjarráð Grindavíkur - 1417. fundur - undefined
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kom á fundinn og fylgdi málinu eftir.
Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að skoða möguleika á að verða við tilmælum um frían grunnskóla þannig að sveitarfélagið leggi út fyrir kostnaði við ritföng og önnur gögn fyrir nemendur og stuðli þannig að enn meiri jöfnuði meðal nemenda í Grindavík. Með hagstæðum innkaupum og samnýtingu má minnka heildarkostnað við kaupin þegar upp er staðið.
Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir skólaárið 2017-2018.