Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1606070

Bæjarráð Grindavíkur - 1414. fundur - 7.5.2016 00:00:00


Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til umhverfis- og ferðamálanefndar til afgreiðslu.


Erindi þessa bréfs er að óska eftir samstarfi við sveitarfélagið um framhald verkefnis sem gengið hefur undir nafninu "Kortlagning auðlinda ferðaþjónustunnar". Fyrsti áfangi þess var unninn á árinu 2014, þar sem með aðstoð heimafólks voru metnir um 5.000 staðir um allt land. Megintilgangurinn var að skráningin gæti nýst sveitarfélögum og öðrum þeim sem koma að skipulagsmálum ferðaþjónustunnar og gera þannig tilraun til að greina á kerfisbundinn hátt hvar auðlindir ferðaþjónustunnar og tækifæri liggja til framtíðar.