Málsnúmer 1604041
Skipulagsnefnd - 17. fundur - undefined
Erindi frá Stakkavík ehf. kt. 480388-1519. Í erindinu er spurt um hvort leyfi fengist fyrir því að rífa hluta fjárhúsa fastanúmer 226-7717 merking 020101 og koma þar fyrir húsi skv. teikningum unnum af Verkfræðistofu Suðurnesja dagsettar 3.8.2010. Einnig er spurt hvort greiða þurfi gatnagerðargjöld vegna þessa. Skipulagsnefnd telur að umrædd fyrirspurn fyrir endurnýjun á fjárhúsum rúmist innan skilgreininga gildandi aðalskipulags. Ekki er hægt að taka afstöðu til bygggingarleyfis án frekari gagna. Sviðsstjóra falið að svara erindinu með vísan í 3. gr. laga um gatnagerðargjöld nr. 153/2006. Þar segir ” Gatnagerðargjald skal innheimt ef reist er ný og stærri bygging í stað annarrar á sömu lóð sem stækkuninni nemur.“