Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1604033

Bæjarráð Grindavíkur - 1416. fundur - 8.9.2016 00:00:00


Bæjarstjóri fór yfir dagskrá vinabæjarheimsóknar til Ilhavo í Portúgal dagana 17. -21. ágúst næstkomandi. Ferðin er skipulögð í samstarfi við Íslandsstofu, en í Ilhavo er árlega haldin saltfiskhátíð sem fær um 300.000 gesti. Þann 19. ágúst verður Íslandsdagur þar sem Grindavík verður í öndvegi. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra og sendiherra Íslands í Portúgal verða með í för.

Í sendinefnd Grindavíkurbæjar verða forseti bæjarstjórnar, formaður bæjarráðs, bæjarstjóri og hafnarstjóri.