Málsnúmer 1603076
Frístunda- og menningarnefnd - 55. fundur - 9.7.2016 00:00:00
Skýrsla um starfsemi Vinnuskólann í sumar, niðurstaða rýnifundar og könnun á meðal foreldra/forráðmanna í sumar lögð fram. Alls voru 86 nemendur í Vinnuskóla Grindavíkur 2016 sem skiptist þannig:
8. bekkur 38, 9. bekkur 18 , 10. bekkur 15, 11. bekkur og eldri 15. Þar sem talsvert færri yngri nemendur sótti um var ákveðið að ráða nokkuð af eldri nemendur (17+) sem sóttust eftir að komast í vinnuskólann.
Gerðar voru nokkrar breytingar á vinnufyrirkomulagi nemenda. Starfsemi Vinnuskólans tókst með ágætum. Í skýrslunni koma fram ýmsar hugmyndir til að efla starfið enn frekar, m.a. að breyta vinnuskólanum í Starfsskóla og auka fræðslu og val nemenda.