Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1601099

Skipulagsnefnd - 14. fundur - undefined


Lögð fram umsókn frá Iceland Resources ehf., til Orkustofnunar um rannsóknarleyfi á nokkrum svæðum á Íslandi, þ.a.m svæði EL 01 á Reykjanesi til leitar að gulli. Umrætt svæði er innan Grindavíkur.

Skipulagsnefnd telur ekki líklegt að bætt verði inn nýjum námum í aðalskipulagi Grindavíkur. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að sækja beri um framkvæmdaleyfi fyrir öllum framkvæmdaleyfisskyldum framkvæmdum tengdum verkinu sbr. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Innan svæðisins EL 01 er mikið af viðkvæmum svæðum m.a. svæði á náttúruminjaskrá, vatnsverndarsvæði, nútímahraun ofl. Skipulagsnefnd ítrekar að utanvegaakstur er með öllu óheimill. Skipulagsnefnd leggur til við Orkustofnun að erindi Iceland Resources ehf. verði sent Reykjanes Geopark til umsagnar á öllum stigum málsins. Málinu vísað til umhverfisnefndar.


Lögð fram umsókn frá Iceland Resources ehf., til Orkustofnunar um rannskóknarleyfi á nokkrum svæðum á íslandi, þ.a.m svæði EL 01 á Reykjanesi til leitar að gulli. Umrætt svæði er innan Grindavíkur