Málsnúmer 1601028
Frístunda- og menningarnefnd - 55. fundur - 9.7.2016 00:00:00
Minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs um Sjóarann síkáta og niðurstöður rýnifundar hagsmunaaðila lagðar fram en bæjarhátíðin fagnaði 20 ára afmæli í sumar. Fram kemur í minnisblaðinu að heilt yfir gekk Sjóarinn síkáti mjög vel í ár bæði hvað varðar skipulag og hversu góður bragur var á hátíðinni. Þá hafa aðsóknartölur aldrei verið eins háar og voru gestir til mikillar fyrirmyndar. Þá er rétt að ítreka ómetanlegt framlag Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar til hátíðarinnar.
Þá segir: "En hvert viljum við stefna með bæjarhátíðina okkar? Sífellt stækkandi hátíð kallar á enn öflugra skipulag, meiri undirbúning, meiri vinnu, betri umgjörð, meiri mannskap og meira fjármagn. Þá er nauðsynlegt að gera lagfæringar á hátíðarsvæði fyrir neðan Kviku. Kominn er tími til að endurskoða skipulagið á hátíðinni og fá fleiri að borðinu".
Lagðar eru fram tillögur í 7 liðum um breyttar áherslur að hátíðinni. Samþykkt að helstu hagsmunaaðilar verði boðaðir á undirbúningsfund með bæjarráði í janúar til þess að fara yfir tillögurnar og setja á stofn starfshóp sem verði sviðsstjóra til halds og trausts við undirbúning hátíðarinnar.