Málsnúmer 1512123
Bæjarstjórn Grindavíkur - 459. fundur - undefined
Til máls tóku: Hjálmar og Kristín María
Óskað er eftir stuðningi á Leikskólanum Laut sem nemur 50% stöðu stuðningsfulltrúa og er gert ráð fyrir að kostnaðarauki verði 2.200.000 kr. á ári.
Bæjarráð samþykkir erindið og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 2.200.000 kr. á launalið Leikskólans Lautar. Fjármögnun verði af handbæru fé.
Samþykkt samhljóða
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki að fjárhæð 2.200.000 kr. sem fjármagnað verði af handbæru fé.