Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1512036

Skipulagsnefnd - 12. fundur - 1.7.2016 00:00:00


Erindi frá Hlyni Helgasyni f.h. HH smíði. Í erindinu er lýst yfir óánægju með gatnagerð í Miðhópi og að hæð götu hafi ekki verið breytt í samræmi við óskir HH smíði á framkvæmdatíma. Einnig er óskað eftir að kostnaður við að laga stétt að innkeyrslum vegna þessa verði ekki látinn falla á HH smíði.
Sviðsstjóri leggur fram minnisblað um málið. Skipulagsnefnd bendir á að mælablað með öllum hæðamerkjum fyrir götuna lá fyrir þegar byggjandi lét hanna mannvirki við Miðhóp 1-9. Það sé því á ábyrgð hönnuða að hafa mannvirki s.s. hús, stéttir og lagnir í réttri hæð í hönnunarferlinu. Nefndin bendir á að engin formleg ósk um breytingu barst nefndinni með nánari tillögum hvorki á hönnunarstigi eða framkvæmdatíma. Á framkvæmdatíma var komið til móts við byggjanda eftir bestu getu með því að sleppa kantstein og snúa niðurtektum í gangstétt inn á við til að lækka hæð götu. Skipulagsnefnd hafnar erindinu.


Sigmar Árnason byggingarfulltrúi sat fundinn undir þessum lið. Erindi frá Hlyni Helgasyni. Í erindinu er lýst yfir óánægju með gatnagerð í Miðhópi og að hæð götu hafi ekki verið breytt í samræmi við óskir HH smíði á framkvæmdatíma. Einnig er óskað eftir að kostnaður við að laga stétt að innkeyrslum vegna þessa verði ekki látinn falla á HH smíði.