Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1512012

Bæjarstjórn Grindavíkur - 460. fundur - undefined


Til máls tóku: Hjálmar, Páll Jóhann, Guðmundur og Kristín María

Bókun frá fulltrúum B-lista
Við undirritaðir fulltrúar framsóknarflokksins hörmum framgöngu bæjarráðs Grindavíkur og forystumanna bæjarstjórnar í meðferð þeirra varðandi forkaupsrétt Grindavíkurbæjar á fiskiskipinu Óla á Stað með þúsund tonnum af aflaheimildum.
Bæjarráð Grindavíkur hefur algerlega brugðist skyldum sínum um að gera allt sem í þeirra valdi stóð til að verja sameiginleg velferðarmál íbúa bæjarins og missa ekki aflaheimildir úr bænum.
Bæjarráð gaf tóninn strax þann 10. nóvember 2015, með bókun um að leggja til við bæjarstjórn að nota ekki lagalegan rétt sinn til að nýta forkaupsrétt á skipi og aflaheimildum þrátt fyrir að fyrirtæki í bænum hafi sýnt vilja til að ganga inn í kaupin og nægur tími til stefnu.
Það var mikið ábyrgðar- og dómgreindarleysi hjá forseta bæjarstjórnar að þrátt fyrir varnaðarorð lögmanns kaupanda og þess heimaaðila sem áhuga hafði á að ganga inn í kaupin var málið tekið út af dagskrá bæjarstjórnarfundar þann 15. desember 2015. Á þeim fundi átti að taka endanlega ákvörðun um hvort nýta ætti forkaupsrétt eða ekki enda er slíkt á forræði bæjarstjórnar og ljóst að mikið af upplýsingum voru komnar fram sem ekki voru til staðar á bæjarráðsfundi hinn 10. nóvember 2015. Ástæðan fyrir því að málið var tekið af dagskrá var bréf seljanda um afturköllun undirritaðs sölutilboð en ljóst var strax að kaupandi og seljandi deildu um gildi þeirrar afturköllunar.
Bókun bæjarráðs Grindavíkur þann 3. febrúar 2016 lýsir svo máttleysi forseta bæjarstjórnar og formanns bæjarráðs þar sem því er lýst að þann 1. febrúar 2016 hafi þeim verið tjáð á fundi með lögmönnum kaupanda og seljanda að kaupsamningur hafi verið undirritaður þann 27. janúar 2016. Orðrétt segir svo í fundargerð ”Bæjarstjórn Grindavíkur hefur aldrei fjallað efnislega um málið“. Nú er staðan sú að lagaleg óvissa er um hvort forkaupsrétturinn sé enn fyrir hendi og inngrip sveitarfélagsins gæti því haft í för með sér óvissu og tjón fyrir aðila málsins.
Forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs hefði verið nær að hafa áhyggjur af tjóni Grindavíkurbæjar því aðeins útsvarstekjur af þessum sjómannsstörfum sem tapast leika á milljónum ár hvert. Forkaupsréttur sveitarfélaga er mikilvægt tæki til að tryggja að störf í sjávarútvegi haldist í heimabyggð og ámælisvert að ekki hafa verið gert allt sem hægt var til að tryggja að Grindavíkurbær gæti nýtt sinn rétt án óvissu sem nú er komin upp.
Páll Jóhann Pálsson og Hjörtur Waltersson

Bókun frá G- og D-lista
Bæjarráð tók málið fyrst fyrir á fundi sínum um miðjan desember. Var það ákvörðun ráðsins að beina því til bæjarstjórnar að neyta ekki forkaupsréttarins í ljósi þess að fjölmögum spurningum var ósvarað. Þar á meðal lá ekki fyrir hvort fyrirtæki hér í sveitarfélaginu gæti keypt bátinn og aflaheimildirnar. Allan tímann voru heildarhagsmundir Grindavíkurbæjar í forgrunni. Á bæjarstjórnarfundi í desember þegar taka átti málið fyrir fengu bæjarfulltrúar formlega tilkynningu að seljandi hefði hætt við söluna. Þann 26. janúar sl. kemur í ljós að kominn er á samningur milli seljanda og kaupanda. Allan þennan tíma hafa forystumenn bæjarins reynt að fá sjávarútvegsfyrirtæki í bænum til að ganga inn í kaupin svo hægt sé að nýta forkaupsréttinn en það hefur enn ekki tekist.
Á fundi með Garðari, lögmanni Grindavíkurbæjar, upplýsti hann bæjarfulltrúa að fari bærinn í dómsmál og vinni forkaupsréttinn þá verður hann að kaupa bát ásamt aflaheimildum, þrátt fyrir að ekki liggi fyrir kaupandi í sveitarfélaginu. Við teljum ekki skynsamlegt að fara þessa leið ef ekkert sjávarútvegsfyrirtæki í Grindavík getur gengið inn í kaupin. Þar sem um er að ræða rúmlega þriggja milljarða fjárfestingu finnst okkur áhættan verulega mikil fyrir sveitarfélagið.
Fulltrúar D og G lista