Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1511071

Skipulagsnefnd - 13. fundur - undefined


Tekin fyrir eftir auglýsingu breyting á deiliskipulagi Stamphólsvegar í Grindavík. Breytingin felur í sér að Stamphólsvegur 3 verði skipt upp í tvær lóðir og að reist verði 4 hæða fjölbýlishús. Lóð við Stamphólsveg 3 verður 3.493 m2. Á nýrri lóð Stamphólsveg 5 verður leyfilegt að reisa 4. hæða fjölbýlishús með hámarkshæð 12 m. Skipulaginu fylgir skýringaruppdráttur. Tillagan var auglýst frá og með 4. desember 2015 til og með 18. janúar 2016. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs skipulagið til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.