Málsnúmer 1511021
Frístunda- og menningarnefnd - 48. fundur - 12.2.2015 00:00:00
Skýrsla um starfsemi tjaldsvæðisins sumarið 2015 lögð fram. Met aðsókn var á tjaldsvæðinu í Grindavík í sumar, frá miðjum maí og til loka september, bæði hvað varðar gesti og gistinætur. Aukningin á gistinóttum á milli ára er um 35% og aukning gesta um 34%. Alls komu 9120 gestir á tjaldsvæðið í sumar frá maí til september en gistinætur voru 10.449. Aukning bara í september var um helming.