Málsnúmer 1510082
Bæjarstjórn Grindavíkur - 456. fundur - undefined
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Hjálmar og Guðmundur
Annasamir ehf. óskar eftir lokun á Verbraut fyrir framan Bakka í 2 daga á tímabilinu 17.-26. nóvember nk. Í erindinu kemur fram að svæðinu verði skilað í upprunalegu ástandi og að samráð við fyrirtæki á svæðinu hafi átt sér stað. Skipulagsnefnd gerir kröfu um að umsagnaraðili leggi fram kort með hjáleiðum, nákvæmar tímasetningar og jákvæða umsögn lögreglu a.m.k 2 dögum fyrir áætlaða lokun. Einnig að vegmerkingar verði settar upp í samræmi við leiðbeiningar Vegagerðarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfið verði samþykkt með ofangreindum skilyrðum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu Skipulagsnefndar samhljóða