Málsnúmer 1510018
Bæjarstjórn Grindavíkur - 456. fundur - undefined
Til máls tók: Hjálmar
Lagt fram erindi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, dags. 29. september 2015 ásamt sundurliðaðri tillögu að gjaldskrá eftirlitsins fyrir árið 2015. Umsögn heilbrigðisnefndar Suðurnesja, dags. 17. september 2015 liggur fyrir.
Með vísan til 12. og 25. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, 25. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 8. gr. laga nr. 6/2002 um tóbaksvarnir og að fenginni umsögn Heilbrigðisnefndar Suðurnesja, samþykkir bæjarráð framlagða tillögu að gjaldskrá Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja 2015.
Gjaldskráin skal auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þegar samþykki allra sveitarstjórna á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja liggur fyrir.
Bæjarstjórn staðfestir samhljóða ákvörðun bæjarráðs.
Staðfesta afgreiðslu bæjarráðs