Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1508017

Bæjarstjórn Grindavíkur - 454. fundur - undefined


Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.

Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann, Jóna Rut, Þórunn og Ásrún

Tekin fyrir óveruleg breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar. Breytingin tekur til hluta tengivegar (Eyjasund) norðan megin við hringtorgið við Austurveg, íbúðarsvæðis vestan megin við tengiveginn og búgarðabyggðar austan megin við veginn.

Tilgangur breytingarinnar er að stækka íbúðarsvæðið austan Eyjasunds svo gamall vatnstankur sem fyrirhugað er að nýta sem íbúðarhúsnæði sé innan þess.

Við stækkun svæðisins þarf að hliðra tengiveginum u.þ.b. 14 metra til austurs á um 200 m kafla, til að íbúðarsvæðið sé utan helgunarsvæðis vegarins. Íbúðarsvæðið er stækkað um 0,033 ha og búgarðabyggðin minnkuð um 0,2 ha. Breytingin felur eingöngu í sér breytingu á þéttbýlisuppdrætti aðalskipulagsins en ekki breytingu á greinargerð.
Breytingin er gerð í samráði við Vegagerðina. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna skv. 2. mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fela skipulagsfulltrúa hana til fullnaðarafgreiðslu. Einnig að Skipulagsfulltrúa verði falið að kynna breytinguna fyrir landeigendum.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.