Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1508016

Bæjarstjórn Grindavíkur - 454. fundur - undefined


Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.

Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur og Páll Jóhann

Tekin fyrir óveruleg breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar. Breytingin tekur til austasta hluta iðnaðarsvæðisins merkt i9 og til staðsetningar deiliskipulags Brimketils, sem er hverfisverndað svæði (HV2). Breytingin fyrir iðnaðarsvæði i9 er gerð á sveitarfélagsuppdrætti og með textabreytingu í kafla 4.12.2. í greinargerð. Breyting á staðsetningu deiliskipulags Brimketils er eingöngu gerð á sveitarfélagsuppdrætti. Breytingin felst í því að mörk iðnaðarsvæðisins i9 sem er 664,6 ha að stærð eru færð um 148 m til vesturs en við það minnkar svæðið um 4,8 ha. Iðnaðarsvæðið verður um 659,8 ha að stærð eftir breytinguna. Svæðið sem liggur utan iðnaðarsvæðis eftir breytinguna verður skilgreint sem óbyggt svæði með hverfisvernd merkt HV 2, sem nú er staðsett nákvæmar en gert er á gildandi aðalskipulagi. Vegna vinnslu deiliskipulags fyrir Brimketil þarf að leiðrétta þessar villur til að samræmis gæti á milli aðal- og deiliskipulags. Gerð verður óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi fyrir Iðnaðarsvæði við Mölvík til að samræma mörkin.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna skv. 2. mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fela skipulagsfulltrúa hana til fullnaðarafgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.