Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1506083

Bæjarráð Grindavíkur - 1386. fundur - 7.7.2015 00:00:00


Framhald frá fundi 1385.

Bæjarstjóri og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fóru yfir tillögu að skipulagsbreytingum á sviðinu sem miða að því að auka áherslu á fræðslumálin. Fræðslunefnd og félagsmálanefnd hafa fjallað um tillöguna og lýst stuðningi.

Fulltrúi B-lista leggur fram eftirfarandi tillögu.
Hjá Grindavíkurbæ eru nú starfandi fimm svið. Miðað við rekstrarkostnað ársins 2014 er ljóst að 71,1% af rekstrarkostnaði bæjarins fellur undir félagsþjónustu- og fræðslusvið. Önnur svið deila með sér 28,9% af rekstrargjöldum. Ljóst er að félagsþjónustu- og fræðslusvið er því lang stærsta sviðið bæði þegar kemur að rekstrarkostnaði og starfsmannafjölda (77,3% starfsmanna bæjarins). Nýta á það tækifæri og svigrúm sem nú hefur myndast á umræddu sviði til að leggja aukna áherslu á fræðslumál. Með hliðsjón af því leggur fulltrúi B-lista til að félagsþjónustu- og fræðslusviði verði skipt upp í tvö svið, annars vegar fræðslusvið og hins vegar félagsþjónustusvið og að auglýst verði starf sviðstjóra fræðslumála. Þannig er hægt að efla starf skólaskrifstofunnar og leggja aukna áherslu á fræðslumál.

Tillagan er felld með tveimur atkvæðum D- og G-lista gegn einu atkvæði B-lista.

Fulltrúar D- og G-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Í nýrri tillögu frá félagsþjónustu- og fræðslusviði eru gerðar skipulagsbreytingar til að hlúa betur að fræðslumálunum. Samkvæmt tillögunni verður til ný staða forstöðumanns skólaþjónustu en sviðsstjóri félags- og fræðslumála verður áfram næsti yfirmaður skólastjórnenda. Við tökum undir með fulltrúa B-lista að leggja þarf mikla áherslu á fræðslumálin og teljum við að svo sé verið að gera með fyrirliggjandi tillögu. Bæði félagsmálanefnd og fræðslunefnd hafa fjallað um tillöguna og lýst yfir ánægju með hana. Við tökum undir með þeim og væntum þess að með breytingunni sé verið að taka mikið umbótaskref í átt að enn betri og bættri þjónustu í fræðslumálum.

Formaður ber tillögu bæjarstjóra og sviðsstjóra upp til atkvæða

Tillagan er samþykkt samhljóða. Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra að koma henni til framkvæmda. Auglýst verða þrjú laus störf í stað þeirra þriggja sem eru ýmist laus eða að losna.