Málsnúmer 1505069
Bæjarráð Grindavíkur - 1383. fundur - 6.2.2015 00:00:00
Til fundarins eru mættir kjörnir fulltrúar í fræðslunefnd; Þórunn Svava Róbertsdóttir, Klara Halldórsdóttir, Ámundínus Örn Öfjörð, Ómar Örn Sævarsson og Eva Björg Sigurðardóttir, varamaður fyrir Guðmund Grétar Karlsson. Auk þeirra Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Halldóra Kristín Magnúsdóttir skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur.
Ákveðið að boða til stefnumótunarfundar um samstarf heimilis og skóla í Grindavík þann 11. júní næstkomandi kl. 17:00 og boðið verður upp á súpu.
Kjörnir fulltrúar í fræðslunefnd taka þátt í umræðum, ásamt sviðsstjóra.