Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1505068

Bæjarráð Grindavíkur - 1386. fundur - 7.7.2015 00:00:00


Bæjarráð samþykkti á 1383. fundi sínum tillögu fræðslunefndar um að heimilt verði að greiða starfsfólki, sem útskrifaðist með B.Ed. gráðu í grunn- og/eða leikskólakennarafræðum frá og með árinu 2012, sömu laun og þeim sem eru með sömu gráðu og leyfisbréf að auki, að því tilskildu að undanþága fáist fyrir ráðningu þeirra frá undanþágunefnd.

Bæjarstjóri leggur til að framkvæmd þeirrar samþykktar verði breytt, þannig að heimilt verði að greiða þeim sem eru með B.Ed. gráðu tímabundin viðbótarlaun samkvæmt kjarasamningi KÍ við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna tímabundins álags vegna náms viðkomandi starfsmanns til að öðlast leyfisbréf.