Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1504108

Bæjarstjórn Grindavíkur - 460. fundur - undefined


Til máls tóku: Hjálmar, bæjarstjóri, Hjörtur, Kristín María og Páll Jóhann.

Bryndís Gunnlaugsdóttir bæjarfulltrúi óskar eftir lausn frá störfum með vísan til 3. mgr. 30. gr sveitarstjórnarlaga.

Ég, Bryndís Gunnlaugsdóttir óska eftir lausn frá störfum sbr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 en ég hef verið í leyfi frá störfum frá 1. júní 2015. Í ljósi breytta aðstæðna get ég ekki lengur sinnt bæjarstjórnarstörfum ásamt því að vera í 100% starfi á höfuðborgarsvæðinu og verð ég því miður að biðjast lausnar.

Bókun
Ég vil þakka bæjarbúum Grindavíkur fyrir það traust sem þeir hafa sýnt mér frá því að ég var fyrst kjörin í bæjarstjórn árið 2010, það hefur verið sönn ánægja að fá að starfa í þágu íbúa og bæjarfélagsins. Einnig vil ég þakka félagsmönnum í Framsóknarfélagi Grindavíkur sem og samstarfsfólki mínu í bæjarstjórn fyrir gott samstarf. Að lokum við ég sérstaklega þakka starfsfólki bæjarins fyrir gott samstarf enda er hlutverk Grindavíkurbæjar fyrst og fremst að veita þjónustu við íbúa bæjarins og þar gegnir starfsfólk bæjarins lykilhlutverki.

Bæjarstjórn óska ég velfarnaðar í sínum störfum.
Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða beiðni Bryndísar og mun Páll Jóhann Pálsson taka sæti hennar í bæjarstjórn frá og með næsta fundi.
Bæjarstjórn felur formanni kjörstjórnar að gefa út ný kjörbréf.

Bókun
Við undirritaðir bæjarfulltrúar Framsóknar þökkum Bryndísi Gunnlaugsdóttur fyrir gott samstarf og það óeigingjarna starf sem hún hefur unnið fyrir bæjarfélagið og Framsóknarfélag Grindavíkur, og vekjum athygli á því að erfitt verður að fylla það skarð sem Grindavíkurbær hefur hlotið við að missa duglegan og vel menntaðan lögfræðing frá störfum.
Ekki er víst að bæjarbúar geri sér grein fyrir því hve mikilvægt það er fyrir bæjarfélagið að hafa vel menntað og duglegt fólk við stjórn bæjarins.
Páll Jóhann Pálsson og Hjörtur Waltersson

Bókun
Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri þakka Bryndísi Gunnlaugsdóttur Holm fyrir gott samstarf og góð störf í bæjarstjórn Grindavíkur og óska henni velfarnaðar á öðrum vettvangi.


Bryndís Gunnlaugsdóttir bæjarfulltrúi óskar eftir lausn frá störfum með vísan til 3. mgr. 30. gr sveitarstjórnarlaga.