Málsnúmer 1504069
Frístunda- og menningarnefnd - 43. fundur - 5.6.2015 00:00:00
Farið yfir niðurstöður kannanna Rannsóknar og Greiningu fyrir árið 2015 um vímuefnanotkun nemenda í 8. - 10. bekk. Ítarlegir spurningalistar eru lagðir fyrir nemendur. Svarhlutfall nemenda var 84%. Frístunda- og menningarnefnd fagnar þeim árangri sem er að nást í forvarnarmálum gagnvart vímuefnaneyslu nemenda en hvetur foreldra og forráðamenn til að halda vöku sinni í þessum efnum og styðja vel við bakið á ungmennum sínum í þá veru að koma í veg fyrir eða seinka neyslu eins og hægt er.