Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1504067

Bæjarráð Grindavíkur - 1383. fundur - 6.2.2015 00:00:00


Til fundarins eru mættir kjörnir fulltrúar í fræðslunefnd; Þórunn Svava Róbertsdóttir, Klara Halldórsdóttir, Ámundínus Örn Öfjörð, Ómar Örn Sævarsson og Eva Björg Sigurðardóttir varamaður fyrir Guðmund Grétar Karlsson. Auk þeirra Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Fulltrúar í fræðslunefnd viku af fundi.

Bæjarráð samþykkir að fjölga leikskólarýmum í Grindavík með því að bæta einni deild við Leikskólann Laut frá og með næsta hausti.

Bæjarstjóra falið að hefja undirbúning flutnings skólastofu frá Ásabraut. Leikskólastjóra Leikskólans Lautar falið að leggja fram tillögu að breytingum á fjárhagsáætlun á árinu 2015.


Kjörnir fulltrúar í fræðslunefnd taka þátt í umræðum, ásamt sviðsstjóra.