Málsnúmer 1503175
Bæjarráð Grindavíkur - 1377. fundur - 4.7.2015 00:00:00
Edda Auðardóttir fer fram á að Grindavíkurbær endurgreiði rútumiða sem seldir voru í umboðssölu fyrir SBK, en ógiltust við gildistöku nýs samgöngukerfis um áramótin.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu og bendir á að Grindavíkurbær seldi miðana í umboðssölu fyrir SBK og því eðlilegt að beina fyrirspurninni þangað.