Málsnúmer 1503112
Bæjarráð Grindavíkur - 1377. fundur - 4.7.2015 00:00:00
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu-og fræðslusviðs kynnti málið.
Fræðslunefnd leggur til að leikskólum verði veitt heimild fyrir fimmta starfsdaginn skólaárið 2015-2016. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að kanna viðhorf foreldra til starfsdaga í gegnum Skólapúlsinn í næstu foreldrakönnun.
Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar og hvetur til þess að áfram verði leitast við að starfsdagar valdi sem minnstu raski á starfsemi leikskólanna.