Málsnúmer 1503035
Bæjarráð Grindavíkur - 1453. fundur - undefined
Málinu var frestað á síðasta fundi bæjarráðs.
Lagt fram bréf frá Golfklúbbi Grindavíkur þar sem bent er á misskilning varðandi það að framkvæmdastyrkur ársins 2015 hafi verið tekinn sem hluti af uppbyggingarsamningi Bláa Lónsins, Grindavíkurbæjar og Golfklúbbs Grindavíkur. Bæjarráð telur ábendinguna réttmæta og samþykkir að setja 3.000.000 kr. í fjárhagsáætlun 2018 sem síðustu greiðslu í uppbyggingarsamningi við Golfklúbbinn.
Formaður Golfklúbbs Grindavíkur sendi bæjarráði póst þar sem fram kemur að enn sé ólokið gerð undirganga undir Nesveg við golfvöllinn. Bæjarráð frestaði málinu á síðasta fundi.