Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1501208

Bæjarstjórn Grindavíkur - 477. fundur - undefined


Til máls tóku: Hjálmar, Marta

Tillaga frá meirihluta
Tillaga meirihluta skipulagsnefndar frá 18. september var að fela sviðsstjóra að leggja fram tillögu að skiptingu svæðisins í samræmi við umræður á fundinum og leggur meirihluti bæjarstjórnar til að farið verði eftir þessari tillögu skipulagsnefndar.

Bókun
Fulltrúar minnihluta B og S lista lýsa vanþóknun á vinnubrögðum meirihluta sem hefur dregið málið áfram allt kjörtímabilið. Fyrir löngu var það ljóst að meirihlutinn ætlaði ekki að samþykkja skipulagið óbreytt en í stað þess að koma fram með breytingartillögu hefur málinu ítrekað verið frestað og stungið undir borð.

Tillaga frá meirihluta er samþykkt með 4 atkvæðum gegn 3 atkvæðum minnihluta.


Tekin fyrir tillaga að deiliskipulagi miðbæjar ásamt greinargerð með endanlegri áætlun og umhverfisskýrslu skv. lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Tillagan var auglýst með athugasemdafrest frá 8. maí til 26. júní. Óskað var eftir umsögnum frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Umhverfisstofnun og Vegagerðinni. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun og Vegagerðinni. Í umsögn Umhverfisstofnunar er minnt reglugerð um fráveitur og skólp nr. 789/1999. Í umsögn Vegagerðar eru sett skilyrði þegar kemur að gatnahönnun ásamt ósk um að þegar kemur að framkvæmd verði hönnunargögn send Vegagerðinni til umsagnar. Athugasemdir bárust frá tveimur aðilum.$line$$line$Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að svara athugasemdunum og umsögnum í samræmi við fyrirliggjandi drög að svörum og skipulagsfulltrúa verði falin tillagan ásamt endanlegri áætlun til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.